Hólmasel

Félagsmiðstöðin Hólmasel hefur verið starfrækt í Hólmaseli 4-6 frá árinu 1992. Hólmasel þjónustar börn á aldrinum 10-16 ára í Öldusels- og Seljaskóla.
Símanúmer Hólmasels er 567-7730 eða 695-5034.
Hólmasel er opið virka daga frá kl 14-17 nema föstudaga  og svo mánudags-, þriðjudags-, miðvikudags- og föstudagskvöld.
 
Markmið Hólmasels er að veita börnum og ungmennum innihaldsríka þjónustu í frítíma þeirra.  Unnið er samkvæmt stefnumörkun og gæðaviðmiðum Íþrótta- og tómstundasviðs Reykjavíkur (ÍTR). Lögð er sérstök áhersla á forvarnarstarf , að stuðlað sé að jákvæðum félagsþroska, að starfsemin standi öllum til boða og að fyrirliggjandi séu upplýsingar um íþrótta- og tómstundartilboð í hverfinu.

Gildi:

Heilbrigði

• ÍTR býður upp á fjölbreytta frítímaþjónustu sem stuðlar að

heilbrigði og hamingju einstaklinga á öllum aldri.

Skemmtun

• ÍTR leggur áherslu á að sérhver einstaklingur geti nýtt

frítímaþjónustuna sér til ánægju og gleði.

Félagsleg þátttaka

• ÍTR styrkir félagsauð með því að hvetja borgarbúa til virkrar

þátttöku, samstarfs og samheldni í hverfum borgarinnar.

Uppeldi

• ÍTR gegnir mikilvægu uppeldishlutverki gagnvart börnum

og unglingum.

Forvarnir

• ÍTR sinnir mikilvægu forvarnarstarfi því að heilbrigður lífsstíll

endurspeglast í allri starfsemi ÍTR.

Jafnrétti

• ÍTR leitast við að tryggja jafnræði og jafnrétti í allri sinni

starfsemi og stuðlar að því að íþrótta- og æskulýðsfélög vinni

út frá sömu gildum.

Samstarf

• ÍTR leitar eftir samstarfi við íþrótta- og æskulýðsfélög, önnur

félög, samtök, stofnanir og fyrirtæki í því skyni að efla

frítímaþjónustu fyrir borgarbúa.

Fagmennska

• ÍTR leggur áherslu á faglega og lipra þjónustu. Grundvöllur

þess er vel þjálfað starfsfólk og starfsánægja.

 
 
 
Á sumrin hafast þar við börn á leikja- og ævintýranámskeiðum auk fjörliða, sem er samstarfsverkefni Vinnuskóla Reykjavíkur og ÍTR.






Flýtileiðir


Breyta um leturstærð/Mínar stillingar


Leit