Fréttir og tilkynningar

Breiðholt got talent

15.02.2012

Flestir ættu að kannast við keppnina Britain´s got talent, við í félagsmiðstöðvum Breiðholt höfum útfært keppnina yfir á íslenku og heitir hún Breiðholt got talent. Síðastliðin tvö ár hefur keppnin farið vonum framar og hafa yfir 200 krakkar verið að mæta á keppnina og yfir 15 atriði. Keppnin er haldin í vel skreyttum hátíðarsal Breiðholtsskóla með hátækni ljósasýningu og að sjálfsögðu verða dómarar, en þeir velja 5 flottustu atriðin og síðan velja áhorfendu í sal atriðið sem vinnur. Sigurvegararnir fara ekki tómhentir heim því 3.sætið fyrir bíómiða í verðlaun, 2.sætið fær bíómiða í lúxussal og 1.sætið fær bíómiða í lúxussal og út að borða á Hamborgarafabrikkuna.

Frítt er inn á keppnina og mun rúta ferja krakkana í 111 og Hólmaseli, fram og til baka.




Flýtileiðir


Breyta um leturstærð/Mínar stillingar


Leit