Fréttir og tilkynningar

Kærleiksdagur Miðbergs

07.12.2011

Frístundamiðstöðin Miðberg, Gerðubergi 1, 111 Reykjavík, heldur sinn kærleiksdag laugardaginn 10. des. milli kl. 13:00 og 16:00 Kærleikur og jólabros verða á hvers manns vörum.
Það er von okkar að sem flestir sjái sér fært að mæta og styrkja um leið gott málefni.

Piparkökuskreytingar, jólaföndur og fatamarkaður.
Eins og fram kemur verður margt skemmtilegt í boði fyrir alla fjölskylduna og mun allur ágóði þessa dags renna til Barnaspítala Hringsins.

Ljósmyndataka með jólasveininum

Kaffi, Heitt kakó og djús

 

Sjáumst í jólaskapi.

Starfsfólk Miðbergs.




Flýtileiðir


Breyta um leturstærð/Mínar stillingar


Leit