Fréttir og tilkynningar

Glæsilegur árangur í Stíl

22.11.2011

Miðberg er ekkert smá stolt af keppendum sínum sem tóku þátt í hönnunarkeppni félagsmiðstöðva laugardaginn 19. nóvember síðastliðinn. Keppnin var öll sú glæsilegasta og voru 55 atriði sem tóku þátt frá félagsmiðstöðvum alls staðar af landinu.

Breiðholtið stóð sig svo sannarlega með prýði og vann félagsmiðstöðin Hundraðogellefu verðlaun fyrir bestu förðun, félagsmiðstöðin Bakkinn vann fyrir besta hárið og félagsmiðstöðin Hólmasel lenti í fjórða sæti yfir heildina.  Er klárt mál að þessar stúlkur eiga framtíðina fyrir sér á sviði tísku og hönnunar.

Til hamingju með þennan frábæra árangur.

 




Flýtileiðir


Breyta um leturstærð/Mínar stillingar


Leit