Í kvöld fer fram undankeppni fyrir Stíl sem er hönnunarkeppni grunnskólanna. 10 lið úr öllum þremur félagsmiðstöðvum Breiðholts taka þátt og ríkir mikil spenna hvaða lið fara með sigur af hólmi og keppa í aðalkeppninni sem fer fram í Ýmirs húsinu laugardaginn 19. nóvember næstkomandi.
Keppnin hefst klukkan 20:30 og mun rúta sækja áhugasama áhorfendur í Bakkann og Hólmasel klukkan átta. Rútan flytur unglingana svo aftur á heimaslóð um 21:45. Ókeypis er í rútuna og inn á sjálfan viðburðinn því er um að gera að láta sjá sig og bera augum það sem stelpurnar í hverfinu hafa verið að hanna undanfarnar vikur.
Hlökkum til að sjá sem flesta - og endilega að taka foreldrana með ef þau vilja koma og skoða :)
Starfsfólk !