Fréttir og tilkynningar

Amazing Race

12.10.2011

AMAZING RACE

Þá er komið að einum vinsælasta viðburði ársins í félagsmiðstöðvum Breiðholts. Ratleikurinn Amazing race verður nú haldinn í fimmta sinn og við búumst við mikilli þátttöku líkt og undanfarin ár. Unglingarnir skrá sig í sinni félagsmiðstöð og líkur skráningu klukkan 17:00 á fimmtudaginn. 2-5 eru saman í hverju liði, hver einstaklingur fær 3 strætómiða til umráða og þarf að skipuleggja sig hvernig hann kemst á milli staða. Öll borgin er keppnissvæðið með nokkrum stöðvum, þar sem unglingarnir hitta fyrir starfsmenn sem hjálpa þeim við að leysa þrautir. Fyrsti hópurinn í mark vinnur keppnina og hlýtur verðlaun fyrir.

Mæting er í hundraðogellefu(Miðberg) klukkan 16:45 föstudaginn 14. Október. Áætlað er að keppnin ljúki um 22:00. Starfsmenn eru með símanúmer allra keppenda og að sama skapi eru keppendur með símanúmer starfsmanna. Vel er fylgst með að hóparnir séu að mæta á rétta staði, og leiki minnsti grunur á að einhver hafi villst er strax haft samband við viðkomandi hóp.

Þessi keppni hefur verið gríðarlega vinsæl undandfarin ár og eru það þreyttir en sælir unglingar sem skila sér í mark að keppni lokinni.

Allar nánari upplýsingar er hægt að nálgast í síma 411-5760 eða hjá verkefnastjórum félagsmiðstöðvanna

Hlynur : 695-5035 (Hundraðogellefu)

Gunnar: 695-5034 (Hólmasel)

Svava: 664-7600 (Bakkinn)




Flýtileiðir


Breyta um leturstærð/Mínar stillingar


Leit