Fréttir og tilkynningar
Tíu12 í lazertag| 24.02.2011
Strákarnir í Tíu12 fóru í lazertag miðvikudaginn 23. febrúar og skemmtu sér allir rosalega vel.
Breiðholt Got Talent| 17.02.2011
Félagsmiðstöðvarnar í Breiðholtinu standa fyrir stórkostlegum viðburði föstudaginn 18. febrúar. Um 15 atriði ætla að taka þátt og er búist við hörku keppni. Keppnin er haldin annað árið í röð í félagsmiðstöðinni Bakkinn (Breiðholtsskóla) og opnar húsið kl 19:30
Skíðaferð| 10.02.2011
Félagsmiðstöðvarnar Hólmasel, Hundraogellefu og Bakkinn ætla að leggja land undir fót fimmtudaginn 31. mars og skella sér á skíði/bretti á Akureyri í tvo daga eða svo.
Flottasta kakan| 12.01.2011
Í desember varð Samfés 25 ára og hélt að tilefni þess keppni um flottustu kökuna. Unglingarnir í Hólmaseli tóku að sjálfsögðu þátt og rústuðu keppninni eins og þeim er einum lagið. Að verðlaun fá þau spil frá versluninni Spilavinum.
Til hamingju Hólmasel :-)
Jólakveðja| 21.12.2010
Starfsfólkið í Hólmaseli óskar öllum sínum börnum og unglingum gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári. Takk fyrir alveg frábært ár og við hlökkum mikið til að gera árið 2011 enn betra með ykkur.
Breiðholtið vann| 30.11.2010
Úrslitakvöld Skrekks fór fram mánudaginn 15. nóvember síðastlinn. Lið Seljaskóla bar sigur úr bítum og lið Breiðholtsskóla lenti í því öðru.