Um Miðberg

Frístundamiðstöðin Miðberg
Gerðurbergi 1
111 Reykjavík
Sími: 411 5750
Netfang: midberg@itr.is
Heimasíða: www.midberg.is

Skrifstofa Miðbergs er opin alla virka daga milli kl. 09:00 og 17:00.

Frístundamiðstöðin Miðberg stendur fyrir fjölbreyttu starfi fyrir börn og ungmenni frá aldrinum 6 - 16 ára. Frístundamiðstöðin Miðberg er byggð á grunni Fellahellis og hefur hún þjónað Breiðholtsbúum frá árinu 1974. Markmið Miðbergs er að veita börnum og ungmennum innihaldsríka þjónustu í frítíma þeirra. Mikið er lagt upp úr því að bjóða upp á fjölbreytt og áhugavert frístundastarf. Uppbygging þjónustu í frítímanum er ein af kröfum nútímans. Þar á að vera vettvangur tómstunda, menntunar, menningar og uppeldis undir handleiðslu hæfra starfsmanna. Frá Miðbergi er stutt í náttúruperluna Elliðaárdalinn og Breiðholtslaugin er hinum megin við götuna. Starfsemi Miðbergs skiptist í barna- og unglingastarf:

Undir stjórn deildarstjóra barnastarfs eru rekin sjö frístundaheimili og frístundaklúbbur fyrir börn og unglinga með fötlun; Álfheimar við Hólabrekkuskóla, Bakkasel og Perlan við Breiðholtsskóla, Vinafell og Æskufell við Fellaskóla, Vinaheimar við Ölduselsskóla og Vinasel við Seljaskóla. Frístundaklúbburinn Hellirinn er við Kleifarsel 18 og veitir þjónustu fyrir börn í Breiðholtinu, Árbæ og Norðlingaholti.

Undir stjórn deildarstjóra unglingastarfs eru reknar þrjár félagsmiðstöðvar; Hundrað&ellefu, Hólmasel og Bakkinn. Félagsmiðstöðvarnar eru með starf fyrir aldurinn 10-12 ára og 13-16 ára. Hundrað&ellefu er staðsett við Gerðuberg 1 og sinnir Hólabrekkuskóla og Fellaskóla. Hólmasel er staðsett við Hólmasel 4-6 og sinnir Seljaskóla og Ölduselsskóla og Bakkinn er við Breiðholtsskóla.

Deildirnar vinna saman að öðrum verkefnum sem snúa að hverfahátíðum og öðrum viðburðum/verkefnum sem tengjast hverfisbúum og samstarfsaðilum í hverfinu.

Unnið er samkvæmt stefnumörkun og gæðaviðmiðum Íþrótta- og tómstundasviðs Reykjavíkur (ÍTR). Lögð er sérstök áhersla á forvarnarstarf , að stuðlað sé að jákvæðum félagsþroska, að starfsemin standi öllum til boða og að fyrirliggjandi séu upplýsingar um íþrótta- og tómstundartilboð í hverfinu.







Flýtileiðir


Breyta um leturstærð/Mínar stillingar


Leit