Fréttir og tilkynningar

Öskudagur, vetrarfrí o.fl.

20.02.2012

Í síðustu viku var ýmislegt um að vera. Íþróttahúsið er vinsælt og þangað fór stór hópur í leiki og singstar vakti líka mikla lukku. Nokkrir krakkar völdu svo að fara í ferð í Ingvar Helgason þar sem við fengum að skoða og setjast í bíla og skoða verkstæðið og öll tækin þar. Á þessari síðu eru komnar myndir frá þeirri ferð auk mynda frá ferðinni í slökkviliðið:)
 
Á fimmtudag og föstudag er vetrarfrí og þá er lokað í Hellinum. Öll börnin eiga að hafa fengið blað heim varðandi lengri viðveru á mivikudaginn (öskudaginn). Minni á að ég þarf að fá það blað útfyllt ef börnin ætla að nýta þann dag í Hellinum.




Flýtileiðir


Breyta um leturstærð/Mínar stillingar


Leit