Fréttir og tilkynningar

Breiðholt's Got Talent

15.02.2012

Föstudaginn 17. febrúar fer fram hæfileikakeppnin Breiðholt got talent. Keppnin fer fram í Breiðholtsskóla og hefst klukkan 20:00. Þetta er í þriðja skiptið sem keppnin er haldin og hefur undanfarið verið stærsti viðburður félagsmiðstöðva í Breiðholti. Unglingar frá félagsmiðstöðvunum 111, Bakkanum og Hólmaseli taka þátt í keppninni sem svipar til sjónvarpsþáttarins Britain´s got talent og America´s got talent. Undanfarin ár hefur þátttaka verið mjög góð, yfir tuttugu atriði, söngur, samkvæmisdans, fiðluleikur, break-dans, stuttir leikþættir og fleira er aðeins brot af því sem áhorfendum er boðið upp á, en um 300 manns hafa horft á keppnina undanfarin ár. Dómarar velja að lokum fimm atriði sem þeim þykja best og áhorfendur kjósa síðan uppáhalds atriði sitt. Þetta hefur gengið gríðarlega vel og ekki við öðru að búast en að frábær stemning verði í Breiðholtsskóla að kvöldi 17. febrúar




Flýtileiðir


Breyta um leturstærð/Mínar stillingar


Leit