Fréttir og tilkynningar

Vikan 13-17 febrúar

14.02.2012

Það er margt skemmtilegt um að vera hjá okkur í þessari viku. Í gær var 10. bekkjarkvöld. Við bökuðum pizzur og spiluðum borðtennis, billjard, fifa, horft var á heimildamynd og margt fleira. Mjög góð mæting og við sáum nokkur ný andlit í félagsmiðstöðinni sem vakti mikla lukku. Einnig byrjaði leiklistaklúbburinn í gær með honum Hafsteini úr 111 og það gekk einnig eins og í sögu.

Á morgun miðvikudag ætlum við svo að hafa opið hús en einnig verður í boði að fara á Gogo yoko tónleika í Hólmaseli. Það kostar 1000 krónur inn á tónleikana og mun starfsmaður fara með þeim unglingum sem hafa áhuga.

Breiðholt's got talent verður svo haldið á föstudaginn 17. febrúar en þetta er einn af okkar stæstu viðburðum á árinu! Breiðholt's got talent er hæfileikakeppni Breiðholts. Nokkur atriði eru nú þegar komin frá Bakkanum og hlökkum við rosalega mikið til að sjá alla þessa hæfileika sem krakkarnir hafa. Keppnin fer fram í Breiðholtsskóla og byrjar klukkan 20:00 :) Hlökkum til að sjá sem allra flesta hvetja sitt fólk áfram :) Síðasti skráningardagur í keppnina er í dag þriðjudaginn 14. febrúar.

Stelpuklúbburinn okkar byrjar líka á morgun miðvikudag klukkan 17:15.

Félagsmiðstöðin Bakkinn




Flýtileiðir


Breyta um leturstærð/Mínar stillingar


Leit