Vikan 16-20 janúar og klúbbar
17.01.2012
jæja í þessari viku ætlum við að leggja aðaláherslu á evrópumeistarakeppnina í handbolta! Í gær mánudag horfðum við á leikinn og seldum pizzur, sneiðin á 200 krónur. Á morgun miðvikudag ætlum við að horfa á Ísland-Noregur, búa til geggjaða EM stemmningu og hvetju strákana okkar áfram! Svo á föstudag förum við á ball í Fjölnisheimilinu. Ballið er ætlað fyrir unglinga úr Grafarvogi og Breiðholtinu og skráning gengur mjög vel.
Í lok þessarar viku og næstu hefjast svo skráningar í klúbbana sem verða þetta misserið. Klúbbarnir eru stelpuklúbbur, strákaklúbbur, skíðaklúbbur og handritaklúbbur. Í alla klúbba er fjöldatakmark. Í bæði stelpu og strákaklúbbunum verður lögð áhersla á að gera eitthvað skemmtilegt með krökkunum en einnig verða forvarnir í formi fyrirlestra, spjalls og fleira. Í handritaklúbbnum búa þau til handrit sem leiklistaklúbbur í 111 æfa svo. Skíðaklúbburinn undirbýr og safnar fyrir skíðaferð sem verður 16-17 mars næstkomandi. Einungis þeir sem eru í skíðaklúbbnum geta farið með í skíðaferðina. Skráning í alla klúbba fer fram í Bakkanum en einnig hægt að skrá sig í gegnum skilaboð á facebook með nafni, símanúmeri og í hvaða klúbb einstaklingur er að skrá sig.
Bakkastaff