Undankeppni Samfés
05.01.2012
Hátt í 200 unglingar fjölmenntu á söngkeppni sem haldin var í Breiðholsskóla þann 28.desember en sú keppni er orðinn fastur liður í félagsmiðstöðvum Breiðholts og er einn flottasti viðburður ársins. Eins og öll hin árin endaði söngkeppnin með flugeldasýningu fyrir utan Breiðholtsskóla við mikinn fönguð viðstaddra.
Þeir sem bera sigur úr býtum í keppninni komast í lokakeppni Söngkeppni Samfés sem haldin er í mars hvert ár. Í ár tóku tíu atriði þátt og má sem sanni segja að Breiðholtið hafi að geyma margan óslípaðann demantinn þegar kemur að hæfileikum ungs fólks í hverfinu.
Sá sem skar sig þó úr með laginu Þegar þú ert hér, var Ingi Þór Þórhallsson, en hann þýddi lagið sjálfur. Lagið heitir upprunalega Always gonna be there og er með Jóni Jónssyni. Ingi mun því fara fyrir hönd Breiðholts í lokakeppnina sem haldin verður í mars 2012. Í fyrra sigraði Teitur Gissurason fyrir hönd Breiðholts, Söngkeppni Samféss með laginu Mín eina ást sem hann og bróðir hans, Ísleifur Gissurason, þýddu saman á íslenku, en upprunalega lagið heitir Shining light. Ingi á því titil að verja í lokakeppninni.