ÍTR
 
 

Frístundaheimili

 

Frístundaheimili ÍTR bjóða uppá fjölbreytta og spennandi dagskrá sem veitir börnunum útrás fyrir sköpunargleði sína eftir að hinum hefðbundna skóladegi lýkur. Tómstundastarfið einkennist jafnt af skipulögðum sem frjálsum leik. Hver vika er undirbúin af starfsmönnum þar sem að áhugamál barnanna fá að njóta sín. Vikudagskráin hefur sína föstu liði og má t.d. nefna tölvustund, matreiðslu, sund og leiklist. Markmiðið er að allir finni eitthvað við sitt hæfi og njóti góðra stunda í skemmtilegum félagsskap.

 

Í röðum starfsmanna má finna fólk með fjölbreyttan bakgrunn úr félgasstarfi ýmiskonar, reynslu af uppeldisstarfi hér heima og erlendis frá, kennara, námsmenn, tómstundarfræðinga og listamenn svo nokkur dæmi séu tekin. Grundvallarskilyrði er þó að fá fólk sem hefur áhuga og vilja til að annast og sinna börnum, hafi hjartað á réttum stað!

 

Opnunartími frístundaheimilanna er mánudaga til föstudaga frá kl. 13.30-17.15. Á starfsdögum og í jóla- og páskafríum er opið frá 8.00-17.15.

 

Nánari upplýsingar um heimilin


Bakkasel í Breiðholtsskóla

www.midberg.is/bakkasel

Verkefnisstýra í Bakkaseli er Sigrún Ósk Arnardóttir

S. 411-7469 og 695-5039 bakkasel@itr.is


Vinafell í Fellaskóla

www.midberg.is/pluto

Verkefnisstjóri í Vinafelli er Guðmunda Óskarsdóttir
 
S. 411-7540 og 695-5037 pluto@itr.is
 
Einhverfudeild Vinafells
 
Yfirþroskaþjálfi er Árbjörg Ólafsdóttir
 
S: 411-7540 og 695-5064
 

Álfheimar í Hólabrekkuskóla

www.midberg.is/alfheimar

Verkefnisstjóri í Álfheimum er Jón Víðis Jakobsson

S. 557-4466 og 695-5139 alfheimar@itr.is


Vinasel í Seljaskóla

www.midberg.is/dennidaemalausi

Verkefnisstjóri í Vinaseli er Marta Ólafsdóttir

S. 587-1289 og 695-5038 denni@itr.is


Vinaheimar í Ölduselsskóla

www.midberg.is/frissifriski

Verkefnisstjóri í Vinaheimum er Siriworraluck Boonsart (Jeab)

S. 557-5522 og 695-5036 frissifriski@itr.is

SPURNING DAGSINS

Álfheimar Bakkasel Denni Frissi Plútó