Félagsmiðstöðvar
Unglingastarf fer fram á vettvangi skólanna tvisvar sinnum í viku og í félagsmiðstöðvunum Hólmaseli og Miðbergi þrisvar í viku. Er þar um að ræða blöndu af opnu húsi og skipulagðara starfi s.s. áhugaklúbbum og vinahópum. Eru opnunartímar auglýstir í upphafi vetrar. Klúbbar og hópar auglýsa svo fundartíma sérstaklega. Starfsmenn eru opnir fyrir hugmyndum um nýja klúbba og hópa. Er þá venjulega byggt á frumkvæði unglinganna. Ekkert kostar að taka þátt nema þegar að sérstök tilefni eru til s.s. böll og ferðalög en þá er reynt að stilla verði í hóf. Nánari upplýsingar á heimasíðum félagsmiðstöðvanna, www.midberg.is/midberg og www.holmasel.is
Félagsmiðstöðin veitir ungu fólki ýmis tækifæri á að skyggnast út fyrir hverfið. Þannig stendur ÍTR fyrir ýmsum viðburðum á borgarvísu og má nefna þar helst hæfileikakeppnina Skrekk og spurningarkeppnina Gettu Betur. Nánari upplýsingar á www.itr.is.
Samtök félagsmiðstöðva á Íslandi (samfés) eru með fjölbreitta dagskrá landsvísu. Helstu viðburðir sem nefna má er söngvakeppni, snjóbrettamót, Samfés ballið og landsmót Samfés. Ekki má þá heldur gleyma hinu árlega Rímnafæði sem er rappmót fyrir ungt fólk á Íslandi og haldið er af Miðbergi. Miðberg er einnig tengt alþjóðastarfi og hafa hópar ungmenna farið ásamt starfsmönnum í ferð á vit erlendra ævintýra. Gjaldtaka vegna þáttöku er miðuð við útlagðan kostnað þáttakenda, s.s. ferðakostnað, mat, o.fl. Nánari upplýsingar á http://www.samfes.is/