ÍTR
 
 

Um Miðberg

 

Félagsmiðstöðin Miðberg er byggð á grunni Fellahellis og hefur hún þjónað Breiðholtsbúum frá árinu 1974. Í Miðbergi er listasmiðja, ágætis kaffistofa fyrir nestistímann og stór salur sem hægt er að nýta. Frá Miðbergi er stutt í náttúruperluna Elliðaárdalinn og Breiðholtslaugin er hinum megin við götuna.

 

Markmið Miðbergs er að veita börnum og ungmennum innihaldsríka þjónustu í frítíma þeirra.  Unnið er samkvæmt stefnumörkun og gæðaviðmiðum Íþrótta- og tómstundasviðs Reykjavíkur (ÍTR). Lögð er sérstök áhersla á forvarnarstarf , að stuðlað sé að jákvæðum félagsþroska, að starfsemin standi öllum til boða og að fyrirliggjandi séu upplýsingar um íþrótta- og tómstundartilboð í hverfinu.

 

Starf fyrir börn á aldrinum 6 - 16 ára fer fram á vegum Miðbergs allan ársins hring, en þaðan er félags- og tómstundarstarfi í Breiðholti á vegum ÍTR stýrt.  Fer starfsemin fram í Gerðubergi 1, Hólmaseli að Hólmaseli 4 - 6 og í öllum grunnskólum Breiðholts.

 

Starfsmenn Miðbergs eru með fjölbreyttan bakgrunn.  Með uppeldismenntun, iðnmenntun, reynslu af listsköpun, íþróttum og öðru sem því er tengist markmiðum starfssins.

 

Á veturna rekur Miðberg frístundaheimili í grunnskólum Breiðholts að loknum skóladegi fram til kl: 17:00. Verða foreldrar að skrá börnin sérstaklega í þessa þjónustu sem felur í sér margvíslegt tómstundarstarf og íþróttaskóla á vegum ÍR (Íþróttafélag Reykjavíkur) fyrir 6 ára börn. Sjá nánar á heimasíðum frístundaheimilanna hér til hliðar.

 

Unglingastarf fer fram á vettvangi skólanna allt að 2 sinnum í viku og í félagsmiðstöðvunum Hólmaseli og Miðbergi þrisvar í viku.  Er þar um að ræða blöndu af opnu húsi og skipulagðara starfi s.s. áhugaklúbbum og vinahópum.  Eru opnunartímar auglýstir í upphafi vetrar.  Klúbbar og hópar auglýsa svo fundartíma sérstaklega.  Starfsmenn eru opnir fyrir hugmyndum um nýja klúbba og hópa.  Er þá venjulega byggt á frumkvæði unglinganna.  Ekkert kostar að taka þátt nema þegar að sérstök tilefni eru til s.s. böll og ferðalög en þá er reynt að stilla verði í hóf.

 

Félagsmiðstöðin veitir ungu fólki ýmis tækifæri á að skyggnast út fyrir hverfið.  Þannig stendur ÍTR fyrir ýmsum viðburðum á borgarvísu og má nefna þar helst hæfileikakeppnina Skrekk,  Stíl og spurningakeppnina Gettu Betur.  Nánari upplýsingar á www.itr.is

Samtök félagsmiðstöðva á Íslandi (samfés) eru með fjölbreytta dagskrá landsvísu.  Helstu viðburðir sem nefna má er söngvakeppni, snjóbrettamót, Samfés ballið og landsmót Samfés.  Ekki má þá heldur gleyma hinu árlega Rímnafæði sem er rappmót fyrir ungt fólk á Íslandi og haldið er af Miðbergi.  Miðberg er einnig tengt alþjóðastarfi og hafa hópar ungmenna farið ásamt starfsmönnum í ferð á vit erlendra ævintýra.  Gjaldtaka vegna þátttöku er miðuð við útlagðan kostnað þátttakenda, s.s. ferðakostnað, mat, o.fl. nánari upplýsingar á www.samfes.is

 

Ýmis önnur starfsemi er í Miðbergi s.s. tómstundastarf fyrir fatlaða.  Nánar um það má finna hér á á heimasíðunni.  Miðberg er með um 900 fermetra húsnæði og ýmsan tómstundaútbúnað sem er leigt út til margvíslegrar starfsemi og lánað endurgjaldslaust til félagasamtaka er vinna að æskulýðsstarfi.  Félagasamtök, foreldrafélög og fleiri er starfa að jákvæðu uppbyggingarstarfi börnum og ungu fólki til handa eru velkomin í Miðberg.

 

Nánari upplýsingar má finna í síma 411-5750, einnig með tölvupósti til forstöðumanns, Helga Eiríkssonar, helgi.eiriksson@reykjavik.is