Sumar
 
 

Frístundaklúbburinn Hellirinn

Í Breiðholti er starfræktur frístundaklúbburinn Hellirinn. Hellirinn er fyrir öll börn og unglinga 10-16 ára með fötlun sem eru búsett í Breiðholti, Árbæ og Norðlingaholti. Frístundaklúbburinn er opinn alla virka daga frá því að skóla lýkur á daginn og til klukkan 17 á daginn. Þetta starf er alveg nýtt og byrjaði bara núna í haust 2007. Markmið klúbbsins er að vinna gegn félagslegri einangrun fatlaðra barna og unglinga. Starfið í klúbbnum er einstaklingsmiðað og ungmennin taka sjálf þátt í að móta dagskrá klúbbsins. Frístundaklúbburinn er svona mitt á milli frístundaheimilis og félagsmiðstöðvar. Starfið er fjölbreytt og förum við mikið í ýmsar ferðir. Heimsækjum til dæmis aðra frístundaklúbba og félagsmiðstöðvar, förum á bókasafn, í keilu og annað sem okkur og krökkunum dettur í hug.  

Frístundaklúbburinn er staðsettur við Kleifarsel 18. Hægt er að sækja um fyrir börnin og unglinganna í frístundaklúbbnum inn á rafrænni Reykjavík: https://rafraen.reykjavik.is/pages Frekari upplýsingar eru í síma 411-5750 í Miðbergi. Einni er hægt að hafa beint samband við Borghildi í síma 695-5135 eða í gegnum tölvupóst borghildur.sigurdardottir@reykjavik.is

 

Kær kveðja

Borghildur Sigurðardóttir

Verkefnisstjóri í frístundaklúbbnum Hellinum

Frístundaklúbburinn Hellirinn