Búið að opna fyrir skráningu fyrir næsta skólaár
Í dag , mánudaginn 8. febrúar verður opnað fyrir skráningar barna á frístundaheimili fyrir skólaárið 2010-2011. Skráning fer fram með rafrænum hætti á http://rafraen.reykjavik.is/pages/
Líkt og áður njóta börn sem hefja nám í fyrsta bekk forgangs. Öðrum er úthlutað vistun í tímaröð umsókna.
Símaver borgarinnar (411-1111) aðstoðar fólk við innskráningu og umsóknir í Rafrænu Reykjavík. Einnig er hægt að leita til þjónustumiðstöðva borgarinnar og frístundamiðstöðva.
Á föstudaginn í síðustu viku fóru krakkarnir úr 2. & 3. bekk í sund í breiðholtslaug.
1. bekkur fór í íþróttaskólann og þau fengu svo að leika sér með trölladeig sem þeim fannst ótrúlega gaman.
Í dag fara krakkarnir heim með blað útaf heilum dögum í kringum öskudaginn, 17. & 18. feb. sem þarf að skila á fimmtudaginn.
Einnig er hægt að nálgast eyðublaðið á heimasíðunni.