Frístundakort ÍTR Miðberg Bakkasel Denni Frissi Plútó
 
 

Stjörnupartý :)

 
Miðvikudaginn 27.jan var upp á 8 ára afmæli Álfheima. Haldið var stórt party þar sem ýmislegt skemmtilegt var í boði.

Börnin fengu pylsur og djús í matinn, að því loknu komu skátarnir og héldu smá kynningu fyrir eldri börnin.  Að því loknu fengu börnin köku sem Jonni og Gordon Dóri Ramsay bökuðu. Þetta var klárlega ein besta kaka sem krakkarnir höfðu smakkað enda miklir snillingar að sjá um baksturinn.

Í stóra salnum var farið í nokkra diskó-leiki og að lokum var haldið stórt og flott diskótek. Þar var DJ Kaldalóns að gera mjög góða hluti! Tónlistin hans kom krökkunum heldur betur í gott skap! Að lokum var hann valinn DJ mánaðarins í Álfheimum.