Klúbbastarf og Öskudagur
Núna er klúbbastarfið búið að vera í gangi hjá okkur núna í þrjár vikur. Þetta hefur gengið mjög vel og krakkarnir flestir mjög ánægðir með þessa tilbreytingu. Það eru þrír klúbbar, Tónlistarklúbbur, íþróttaklúbbur og listaklúbbur. Tónlistarklúbburinn hefur farið í tónlistarbúðir þar sem hægt var að skoða hin ýmsu hljóðfæri. Einnig var keyptur gítarkennsludiskur svo núna eru krakkarnir duglegir að æfa sig á gítar. Listaklúbburinn hefur farið á listasafn og teiknað og málað í listasmiðjunni. Íþróttaklúbburinn hefur verið að leika sér íþróttum eins og fótbolta, handbolta og körfubolta. Núna eru þrjú skipti eftir hjá hverjum klúbb.
Það var margt skemmtilegt gert á öskudaginn. Flestir mættu í flottum grímubúningum. Við byrjuðum daginn á því að fara niður í Mjódd og syngja fyrir smá nammi. Eftir það var farið í sund í Laugardalslaugina. Eftir sundið var komið í Hellinn aftur og fengið sér hádegismat. Um klukkan 14:30 byrjaði öskudagsball út í Seljaskóla. Þangað fóru allir og skemmtu sér vel. Ingó í Veðurguðunum spilaði og var mikið sungið með.