ÍTR Miðberg Fellaskoli Álfheimar Bakkasel Denni Frissi
 
 

Fréttir

26.5.2010

Foreldrakvöld

Í kvöld verður foreldrakvöld hjá okkur og þá eru allir foreldrar velkomnir að koma og skoða frístundaheimilið okkar og þiggja veitingar hjá okkur og eiga með okkur góða stund. Opna húsið stendur frá 16-18 í kvöld og hlökkum við til að sjá sem allra flesta.
 
Veðrið hefur heldur betur leikið við okkur undanfarið og eru börnin orðin heldur betur sólbrún og sæt eftir alla útiveruna. Við stefnum á áframhaldandi útiveru, leiki og gaman meðan veðrið leikur svona við okkur.
 
Á morgun fer 1. bekkur í ferð með íþróttaskólanum niður í ÍR hús í leiki og ýmsar æfingar. Þau leggja af stað í rútu frá okkur klukkan 14:00 og eru væntanleg aftur um klukkan 16:00.

21.5.2010

Foreldrakvöld

 Miðvikudaginn 26. Maí er þér/ykkur boðið að koma í heimsókn til okkar í Vinafell og eiga með okkur og börnunum góða stund. Húsið verður opið frá 16:00-18:00.

 

Boðið verður upp á föndur, myndasýningu og óvænta uppákomu frá börnunum.

 

Við hlökkum til að sjá sem allra flesta.

 

Kveðja Vinafell