Jólafrí
Nú er jólafríið rétt að hefjast. Skólinn fer í frí 21. desember og byrjar aftur 5. janúar. Opið verður hjá okkur fram að jólum og milli jóla og nýárs.
Margt skemmtilegt stendur til að gera á þessum dögum, t.d. fara í Húsdýragarðinn og í bæjarferð, hafa bíódag.
Við verðum með jólaball þriðjudaginn 22. desember klukkan 13:30 sem haldið verður í Álfheimum/Hólabrekkuskóla. Þá eiga allir að mæta í snyrtilegum klæðnaði og með jólaskapið með sér.
Þess á milli ætlum við að hafa það alveg afskaplega notalegt og gaman saman í Vinafelli.