ÍTR Miðberg Fellaskoli Álfheimar Bakkasel Denni Frissi
 
 

Jólafasta í Vinafelli

Það hefur margt og mikið drifið á daga okkar hérna í Vinafelli síðan hér var skrifað seinast.
 
Um daginn var heill dagur hjá okkur og þá fórum við í sund í Laugardalslauginni. Við tókum strætó niður í Laugardal og stóðu krakkarnir sig einstaklega vel í strætó, sátu stillt og hljóð og fylgdu öllum reglum og voru alveg til fyrirmyndar. Í sundinu var svo skemmt sér í nýju stóru rennubrautinni og fóru flestir margar ferðir enda engin smá smíði þessi rennubraut, skreytt með ljósum og hvað eina inní henni.
Þegar heim var komið beið okkur rjúkandi heit pizza sem Guðmunda og Árbjörg höfðu bakað fyrir okkur. Þegar við vorum orðin södd og sæl kíktum við út í smá leik og að því loknu enduðu við daginn á video og vöfflubakstri. Einstaklega skemmtilegur og vel heppnaður dagur þar á ferð.
 
Foreldrakaffi var haldið í seinustu viku og var sérstaklega vel mætt og viljum við þakka öllum þeim sem komu fyrir skemmtilega stund. Við máluðum piparkökur og föndruðum jólaföndur. Þar fyrir utan var mikið spjallað og hlegið og haft gaman.
 
Möguleikhúsið hefur verið að koma til okkar einu sinni í viku og hitta 3-4 bekk. Þar fá krakkarnir tækifæri til að þjálfa leiklistarhæfileika sína og sjá hvað leiklistin hefur uppá að bjóða. Krökkunum finnst þetta æðislega gaman og eru orðin heldur betur flink í að bregða sér í hlutverk og leik.
 
Jólatónlistin og gleðin ómar um allt Vinafell þessa dagana og er mikill spenningur fyrir jólunum. Jólaskreytingum fjölgar á veggjunum hjá okkur og það verður alltaf jólalegra og jólalegra hjá okkur. Núna býðum við bara spennt eftir að fá snjóinn svo við getum gert snjókalla og engla í snjónum og komist í ennþá meira jólaskap.

NOTENDAKÖNNUN

DAGATAL

FRÍSTUNDAHEIMILI