3.3.2010
Strætóskólinn í Vinafelli
Ýmislegt hefur á daga okkar drifið í Vinafelli í febrúar. Við vorum með 2 heila daga og var annar þeirra öskudagur. Það mættu allir í búningum þann daginn, bæði börn og starfsfólk. Við skemmtum okkur konunglega þann daginn, horfðum á DVD og fórum svo eftir hádegi í Gerðuberg á Öskudagsskemmtun þar sem hljómsveitin Pollapönk spilaði, Jonni sýndi töfrabrögð og svo var kötturinn sleginn úr tunnunni.
Möguleikhúsið er búið með sitt námskeið og endaði það á því að allir krakkarnir sem tóku þátt, úr öllum frístundaheimilinum í Breiðholti hittust í Hólabrekkuskóla og sýndu stutt leikrit. Þetta var ótrúlega flott hjá þeim og greinilegt að þau hafa lært mikið skemmtilegt í Möguleikhúsinu.
Strætóskólinn "Guli risinn" er hjá okkur þessa vikuna. Skólinn er í boði fyrir 3. og 4. bekk og á námskeiðinu læra þau að nota og þekkja leiðarkerfi Strætó og fá að prófa að fara í strætóferð. Einnig fara þau með strætó í þvottastöð og sjá hvernig strætó er þveginn.
En fyrir utan alla þessa skemmtilegu dagskrárliði sem hafa verið hjá okkur, erum vil líka bara ótrúlega dugleg að fara út að leika í snjónum og fara í sund og leikfimissal og gera allt þetta daglega sem okkur þykir alltaf svo gaman.