Sumarnámskeið
Á vegum Miðbergs í Breiðholti verða starfrækt sumarnámskeið í Miðbergi og Hólmaseli fyrir börn á aldrinum 6-12 ára. Auk hefðbundinna leikjanámskeiða verður boðið upp á þematengd námskeið fyrir 8-9 ára börn og frístundaklúbb fyrir börn á aldrinum 10-12 ára.
Smíðavellir verða opnir í Breiðholtsskóla og Seljaskóla. Miðberg þjónar Breiðholtsbúum í frístundum þeirra, ekki síst börnum og unglingum í hverfinu. Áhersla er lögð á að bjóða upp á fjölbreytt og áhugavert frístundastarf, en Miðberg hefur m.a. umsjón með tveimur félagsmiðstöðvum og fimm frístundaheimilum í Breiðholti. Eitt mikilvægasta markmið í starfi Miðbergs er að stuðla að samheldni íbúanna í hverfinu og taka þátt í samstarfi og samskiptum við ýmsa aðila, bæði innan og utan hverfis.
Skráning
Mikilvægt er að skrá börnin fyrirfram á leikjanámskeið og Fjörkálfa. Tekið er á móti skráningu á staðnum og einnig í gegnum síma. Skráning fer fram í Miðbergi, frá 3. maí – 11. júní, alla virka daga kl. 9.00-16.00. Frá og með 13. júní færist skráning út á starfsstaðina og verður þá tekið á móti skráningu milli kl. 8.00-9.00 og 16.00-17.00 alla virka daga. Engin skráning fer fram í frístundaklúbb eða á smíðavelli. Athugið að ganga þarf frá greiðslu við skráningu. Einnig er hægt að greiða þátttökugjald með millifærslu í heimabanka (í samráði við starfsmenn).
