Um Miðberg

Miðberg er byggð á gömlum grunni félagsmiðstöðvarinnar Fellahellis. Miðstöðin var flutt í Gerðuberg með hliðsjón af ört stækkandi hlutverki hennar og sem samnefnari alls starfs ÍTR í Breiðholtinu. Héðan er rekið félagsmiðstöðvarútibú í þremur grunnskólum, Breiðholtsskóla, Hólabrekkuskóla og Fellaskóla, auk þess að bjóða uppá félags- og tómstundarstarf á mánudags- miðvikudags- og föstudagskvöldum. Opið hús er í skólunum á fimmtudagskvöldum.

Félagsmiðstöðin Miðberg 
Heimilisfang: Gerðuberg 1 | 111 Reykjavík
Sími: 5573550
GSM: 6955030
FAX: 5579130
Netfang: midberg@itr.is

Heimasiða: www.midberg.is

Góðgerðavika

Jæja gott fólk, nú er komið að því að þið sýnið hvað í ykkur býr!!!
Við ætlum að fara af stað með góðgerðaviku mánudaginn 21. apríl sem byrjar á rjómaköku og skyrblöðrukasti.... Þið lásuð rétt rjómakökukast.
Þú getur s.s. komið keypt eina rjómaköku fyrir litlar 250kr. og kastað henni í andlitið á Haffa, Tótu, Kára, Diljá eða Hlyn. Þú getur líka keypt skyrblöðru á sama pening og kastað henni í einhvern út Miðbergsráði. Þetta er klárlega one time thing!!!!
 
Síðan daginn eftir, þriðjudaginn 22. apríl verður Bingó með stórkostlegum vinningum og á miðvikudaginn verður sérstök bíósýning sem verður auglýst betur síðar.

GÓÐGERÐAVIKA