Vikan framundan
Halló Halló
Takk kærlega fyrir frábæra samféshátíð!!
En nú er ný vika framundan og því ekki úr vegi að renna yfir dagskránna næstu daga. Á mánudagskvöldið verður Idolið í imbanum og áhugasamir geta því safnast saman og fylgst með upprennandi stjörnum Bandaríkjanna stíga sín fyrstu skref á stóra sviðinu.
Á þriðjudagskvöldum í vetur höfum við boðið upp á skemmtilega dagsrká í listasmiðjunni okkar. Aðstaðan þar er eins og best verður á kosið, og hvetjum við alla til þess að líta við og kanna hvað er í boði.
Miðvikudagskvöldið verður svo helgað fótboltanum. Stórleikur kvöldsinns verður sýndur, en að sjálfsögðu verður einnig opið fyrir að gera eitthvað annað en að horfa á leikinn!
Á föstudagskvöldið verður svo haldið áfram að semja hundraðogellefu lög. Eitt lag hefur verið samið nú þegar og við vindum okkur strax í að semja næsta lag. Einnig munum við bjóða upp á skrifstofu diskó og wipeout svo fátt eitt sé nefnt.
Endilega látið sjá ykkur!!!!