Samfés vikan!
Nú um helgina á sér stað stærsti sameiginlegi viðburður félagsmiðstöðva á árinu, en það er hin stórkostlega Samféshátíð.
Á föstudaginn verða stórtónleikar í Laugardalshöll þar sem fram koma Ingó og Veðurguðirnir, Páll Óskar, Jeff Who, 32C auk fjölda unglingahljómsveita! Húsið opnar klukkan 18:00 og hefjast tónleikarnir stundvíslega klukkan 19:00 og standa þeir til 23:00. Mæting er í rútuna klukkan 17:00 á föstudeginum
Sönvakeppni Samfés verður svo haldin hátíðleg á laugardaginn. Hefst hún klukkan 13:00 og lýkur henni 16:00. Mæting er í rútuna 11:30.
Það er mjög mikilvægt að allir þeir sem koma með okkur á hátíðina fylgi okkur niður í Laugardalshöll í rútu og fari svo aftur heim með okkur í rútunni, og gildir þetta fyrir báða dagana.
Vakni einhverjar spurningar þá er um að gera að hafa samband við okkur í síma 411-5761