Hvað kostar í frístund?

 
 
Gjaldskrá fyrir dvöl á frístundaheimili:

5 dagar í viku kr. 8.365/mánuð
4 dagar í viku kr. 6.820/mánuð
3 dagar í viku kr. 5.270/mánuð
2 dagar í viku kr. 3.710/mánuð
1 dagur í viku kr. 2.160/mánuð

Ef nýtt er þjónusta kl. 8.00 - 14.00 á foreldradögum og starfsdögum skóla eða í jóla- og páskafríum þarf að greiða fyrir það kr. 890 á dag. Á ofangreindum dögum geta börnin eftir sem áður dvalið á frístundaheimilunum frá kl. 14.00 - 17.15. Þeir sem velja að greiða með boðgreiðslum (VISA eða Mastercard) fá afslátt af dvalargjaldi sem nemur kr. 150 á mánuði.

Í Vinaheimum er í hægt að kaupa síðdegishressingu fyrir börnin.

Gjaldskrá fyrir síðdegishressingu:

5 dagar í viku kr. 2.150/mánuð
4 dagar í viku kr. 1.720/mánuð
3 dagar í viku kr. 1.290/mánuð
2 dagar í viku kr.    860/mánuð
1 dagur í viku kr.    430/mánuð

Umsókn gildir eitt skólaár í senn (ágúst-júní). Ef þjónustu er sagt upp skal það gert fyrir 15. hvers mánaðar og tekur uppsögnin gildi um næstu mánaðarmót. Fylla þarf út þar til gerð eyðublöð sem hægt er að nálgast í viðkomandi frístundaheimili og á heimasíðu ÍTR.

Allar nánari upplýsingar eru veitir Siriworraluck Boonsart (Jeab)  verkefnisstýra Vinaheima í
s: 695-5036 
Við leitumst við að sinna hlutverki okkar af kostgæfni en ef þú hefur fyrirspurnir eða ábendingar um eitthvað sem betur má fara þá sendu okkur línu á frissifriski
@itr.is