Skráning í frístund 2010 hefst í dag 8.feb
Í dag , mánudaginn 8. febrúar verður opnað fyrir skráningar barna á frístundaheimili fyrir skólaárið 2010-2011. Skráning fer fram með rafrænum hætti á http://rafraen.reykjavik.is/pages/
Líkt og áður njóta börn sem hefja nám í fyrsta bekk forgangs. Öðrum er úthlutað vistun í tímaröð umsókna.
Símaver borgarinnar (411-1111) aðstoðar fólk við innskráningu og umsóknir í Rafrænu Reykjavík. Einnig er hægt að leita til þjónustumiðstöðva borgarinnar og frístundamiðstöðva.