Rafræn ÍTR Miðberg Álfheimar Bakkasel Denni Plútó
 
 

Til forráðamanna barna á frístundaheimilum ÍTR

Búið er að skrá öll börn á frístundaheimilum í frístundakortskerfið í Rafrænu Reykjavík og hægt að ráðstafa Frístundakorti vegna dvalargjalda í janúar 2010. Nánari upplýsingar um framkvæmd ráðstöfunar er að finna á vefsíðu ÍTR www.itr.is- Frístundakort.

Þeir forráðamenn sem nýta sér Frístundakortið eru minntir á að greiða ekki greiðsluseðla fyrr en búið er að lækka þá í heimabanka en það tekur um 1-2 virka daga frá ráðstöfun.

Ráðstöfun vegna dvalargjalda í janúar lýkur 13. febrúar 2010.

Kveðja
Sólveig Valgeirsdóttir
Verkefnastjóri frístundakorta
Íþrótta- og tómstundasvið
Bæjarhálsi 1
S. 4115080
www.itr.is