Gullkorn
Gullkorn vikunnar
Hér verða rituð ýmis gullkorn og spakmæli sem börnin láta flakka í Bakkaseli.
3. drengir í 3. bekk tókur sig saman og pissuðu í fötu. Sigrún tekur þá inn á skrifstofu og er að ræða við þá um að við gerum ekki svona í Bakkaseli. Drengirnir skammast sín og eru að hugsa málin þegar þetta samtal verður til:
Drengur 1: Strákar við verðum að biðja Sigrúnu afsökunar!
Drengir 2 og 3: Já
Allir drengirnir: Fyrirgefðu Sigrún, við lofum að vera stilltir og gera ekki svona aftur.
Sigrún: Já gott að heyra, og flott hjá ykkur að biðjast afsökunar. Nú skulum við sjá hvernig gengur næstu daga.
Drengirnir hugsa sig aðeins um og svo:
Drengur 1: Strákar! Spenniði greipar!
Drengirnir spenna allir greipar.
Drengur 1: Guð blessi Bakkasel
Drengir 2 og 3: Guð blessi Bakkasel
Drengur 1: Guð blessi Sigrúnu
Drengir 2 og 3: Guð blessi Sigrúnu
Drengur 1 hugsar sig aðeins um og segir svo: Já og guð blessi þroskahefta!
Drengur 2 og 3: Guð blessi þroskahefta.
Þegar þarna var komið við sögu gat Sigrún ekki haldið andliti lengur og leyfði þeim að fara aftur að leika sér.
Börn eru snillingar!
Starfsmaður spurði eina stúlku í 2 bekk hvað hún fékk í afmælisgjöf og fékk þetta svar:
"Ég fékk 13 þús. kr. og núna á ég miklu meiri pening en pabbi, því hann á bara 1 kort!"
Þetta samtal heyrðist á milli einnar 10 ára og eins gutta sem er 6 ára:
6 ára gutti: "Kannt þú að lita?"
10 ára stelpa: "já"
6 ára gutti: "En kanntu að perla?"
10 ára stelpa: "já"
6 ára gutti: " Hvað kanntu meira?"
10 ára stelpa: "Helling"
6 ára gutti: "Ég kann sko miklu meira en þú, ég kann allavega MANNASIÐI!"
"Þegar við erum orðnir stórir þá ætlum við að búa saman og kaupa FULLT af nammi"
"Einhverntímann ætla ég útí eyðimörkina og finna Mexico"
"Erum við að fara að spila daggminton (badminton) í dag?"
"Sætir strákar eru ekki glaðir!"
Þrír ungir strákar í 3 bekk eru að æfa saman fótbolta og voru að spjalla aðeins um boltann, æfingar o.fl. Svo heyrðist allt í einu í einum guttanum:
"Við erum að fara til Keflafjarðar að keppa um næstu helgi!"
Þetta samtal heyrðist á milli nokkurra barna í 1 bekk.
Drengur: Vissuð þið að þegar börnin fæðast þá eru þau allsber?
Börn: OJJJ
Drengur: Og þegar börnin fara heim þá eru þau líka allsber!
Börn: OJJJ bara! En ógeðslegt!
Drengur : "Hvað kostar svona peysa?"
Starfsmaður: "Hún kostar 100 þúsund milljónir" (sagt í gríni :)
Drengur: "Mamma hefur ekki efni á því. Hún á bara eitt kort"
Lítill strákur í 1. bekk spyr starfsmann:
"Varstu einu sinni útlensk?"
Þetta samtal kom upp í síðustu viku á milli Önnu starfsmanns og stelpu sem er í 1 bekk.
Stelpa: Afhverju ertu að hætta hjá okkur?
Anna: Því að ég fékk aðra vinnu.
Stelpa: Hvar?
Anna: Ég fékk vinnu á sambýli.
Stelpa: Hvað er það?
Anna: Það er staður þar sem fatlað fólk býr.
Stelpa: Fatlað fólk? Er það þannig fólk sem eru með stór höfuð og lítinn maga?