Gjaldskrá
Gjaldskrá fyrir dvöl á frístundaheimili:
5 dagar í viku kr. 8.365/mánuð
4 dagar í viku kr. 6.820/mánuð
3 dagar í viku kr. 5.270/mánuð
2 dagar í viku kr. 3.710/mánuð
1 dagur í viku kr. 2.160/mánuð
Ef nýtt er þjónusta kl. 8.00 - 13.30 á foreldradögum og starfsdögum skóla eða í jóla- og páskafríum þarf að greiða fyrir það kr. 890 á dag. Á ofangreindum dögum geta börnin eftir sem áður dvalið á frístundaheimilunum frá kl. 13.30 - 17.15. Þeir sem velja að greiða með boðgreiðslum (VISA eða Mastercard) fá afslátt af dvalargjaldi sem nemur kr. 150 á mánuði.
Á sumum frístundaheimilum er síðdegishressing á vegum ÍTR. Ef breyting verður á gjaldskrá verður það tilkynnt greiðanda með minnst mánaðar fyrirvara.
Gjaldskrá fyrir síðdegishressingu:
5 dagar í viku kr. 2.150/mánuð
4 dagar í viku kr. 1.720/mánuð
3 dagar í viku kr. 1.290/mánuð
2 dagar í viku kr. 860/mánuð
1 dagur í viku kr. 430/mánuð
Umsókn gildir eitt skólaár í senn (ágúst-júní). Ef þjónustu er sagt upp skal það gert fyrir 15. hvers mánaðar og tekur uppsögnin gildi um næstu mánaðarmót. Fylla þarf út þar til gerð eyðublöð sem hægt er að nálgast í viðkomandi frístundaheimili og á heimasíðu ÍTR.
Allar nánari upplýsingar eru veittar í viðkomandi frístundamiðstöð eða hjá ÍTR í síma 411 5000. Við leitumst við að sinna hlutverki okkar af kostgæfni en ef þú hefur fyrirspurnir eða ábendingar um eitthvað sem betur má fara þá sendu okkur línu á fristundaheimili@itr.is